5. október 2016
Undirbúningur að háskóladeild SFR
Undirbúningsfundur vegna stofnunar háskóladeildar SFR var haldinn síðdegis í gær og mætti þar góður hópur áhugasamra SFR félaga. Á fundinum var meðal annars rætt um markmið og tilgang deildarinnar og unnin drög að samþykktum. Áætlað er að halda stofnfund deildarinnar 17. nóvember næstkomandi en stofnfundurinn verður auglýstur nánar síðar.