23. október 2016
Kvennafrí 24. okt.
Konur ganga út kl. 14:38 á mánudaginn 24. okt. Í því felast táknræn mótmæli gegn launamun kynjanna. Markmiðið er að minna á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Konur um allt land ætla að hittast og krefjast kjarajafnréttis á morgun. Samstöðufundir eru boðaðir á Akureyri, Bolungarvík, Egilsstöðum, Grundarfirði, Hellu, Höfn í Hornafirði, Ísafirði, Neskaupstað, Reykjavík og Þorlákshöfn. Við hvetjum alla til að kíkja inn á Kvennafrí hér á Facebook til að kynna sér dagskrá á hverjum stað fyrir sig. Þar verða upplýsingar uppfærðar um leið og þær berast.