Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. nóvember 2016

Stofnfundur háskóladeildar SFR

Stofnfundur að háskóladeild innan SFR verður haldinn 17. nóvember næstkomandi, kl. 16:30 að Grettigötu 89. Allir félagsmenn SFR sem lokið hafa BA/BS prófi eða sambærilegu námi og nemendur sem lokið hafa a.m.k. 60 einingum á háskólastigi eru velkomnir á stofnfundinn. Á fundinum verður m.a. kosið í stjórn deildarinnar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á fundinn hér.

Á síðasta aðalfundi SFR, sem haldinn var í mars 2016, var samþykkt að stofnuð yrði deild fyrir háskólamenntaða félagsmenn innan SFR. Í kjölfar aðalfundarins ákvað stjórn félagsins að skipa undirbúningshóp vegna stofnunar háskóladeildar. Undirbúningshópurinn hélt vel heppnaðan vinnufund fyrir stofnun deildarinnar í byrjun október þar sem tilgangur og væntingar til deildarinnar voru m.a. ræddar. 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)