Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. desember 2016

Kröfugerð fyrir kjarasamning ISAVIA og SFR í vinnslu

Kjarasamningur SFR við ISAVIA vegna félagsmanna sinna rennur út þann 28. febrúar 2017. Vinna við kröfugerðina er að fara í gang og býðst félagsmönnum að koma á undirbúningsfundi til að móta hana 6. eða 7. desember frá kl. 10 til 12. Mikilvægt er að félagsmenn mæti vel til að hafa áhrif á kröfugerðina og koma sem flestum áhersluatriðum á framfæri. 

Fundurinn verður haldinn í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnsnesvegi 14 í Keflavík og það verður léttur morgunverður í boði. Ekki þarf að skrá sig á fundinn fyrir fram, heldur bara mæta og TAKA ÞÁTT Í MÓTUN KRÖFUGERÐAR!

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)