Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. desember 2016

Undirbúningur vegna kjarasamningsviðræðna við Isavía

Kjarasamningur SFR við Isavia rennur út 28. febrúar 2017. Því til undirbúnings voru tvær vinnustofur haldnar í Reykjanesbæ í vikunni þar sem SFR félagar hjá Isavia lögðu fram sínar hugmyndir um hverju skyldi leitast við að ná fram í kjarasamningsviðræðunum framundan. Hugmyndir félagsmanna voru fjölbreyttar og góðar umræður sköpuðust þeirra á meðal. Komið var inná ýmis atriði sem betur mættu fara, en áberandi var hversu margir töluðu um aukið álag í starfi vegna fjölgunar ferðamanna. Umræður félagsmanna á vinnustofunum verða öflugt og gagnlegt innlegg í undirbúningsvinnuna við myndun kröfugerðar SFR gagnvart Isavia vegna komandi kjarasamninga. 

  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)