Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. desember 2016

BSRB krefst breytinga

Formannaráð BSRB krefst þess að alþingismenn geri mikilvægar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem rætt verður seinna í dag á Alþingi. Í ályktun sem ráðið hefur sent frá sér ítrekuð sú afstaða bandalagsins að mikilvægt sé að ljúka þessum viðamiklu breytingum í sátt við bandalög opinberra starfsmanna. Til þess þurfi að breyta frumvarpinu svo það endurspegli samkomulag um breytta skipan lífeyrismála sem þrjú heildarsamtök opinberra starfsmanna gerðu við ríki og sveitarfélög í september síðastliðnum.
Frumvarpið felur í sér afnám bakábyrgðar sjóðfélaga í A-deild LSR og Brúar sem eru yngri en 60 ára án bóta. Í samkomulaginu kemur hins vegar fram að ekki eigi að skerða réttindi sjóðfélaga heldur eigi þau að vera jafn verðmæt eftir breytingarnar og fyrir þær. Verði ekki gerðar nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu áður en það verður að lögum er ljóst að þessu verkefni er ólokið. Þá er ljóst að það mun hafa neikvæð áhrif á samskipti þeirra sem að samkomulaginu stóðu að ákvæði þess séu ekki uppfyllt, segir í ályktuninni. Ályktunina má lesa í heild sinni hér að neðan.

Forsvarsfólk og félagar aðildarfélaga BSRB munu mæta á þingpalla alþingishússins kl. 15:00 í dag. Við hvetjum félagsmenn SFR til að koma þangað og sýna samstöðu í verki.



Ályktun formannaráðs BSRB um frumvarp til laga um LSR
Formannaráð BSRB krefst þess að Alþingi geri nauðsynlegar breytingar á frumvarpi til laga um LSR til samræmis við undirritað samkomulag um breytta skipan lífeyrismála sem undirritað var 19. september síðastliðinn. Lögð er áhersla á að málið sé afgreitt í sátt við heildarsamtök opinberra starfsmanna.
BSRB hefur margítrekað bent á að fyrirliggjandi frumvarp felur í sér að bakábyrgðin sé afnumin af réttindum sjóðfélaga undir 60 ára aldri án bóta. Það er þvert á markmið samkomulagsins um að réttindi núverandi sjóðfélaga í A-deild LSR og Brúar séu jafn verðmæt fyrir og eftir kerfisbreytingar.
Traust milli aðila er lykilforsenda þess að friður ríki á vinnumarkaði. Fari frumvarpið óbreytt í gegn er ljóst að verkefninu er ólokið og mun ótvírætt hafa neikvæð áhrif á samskipti þeirra sem að samkomulaginu stóðu.

Reykjavík, 20. desember 2016


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)