Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. febrúar 2017

Nýtt orlofshús í Selásum Borgarbyggð

SFR hefur fest kaup á stóru orlofshúsi sem stendur við Selása í Borgarbyggð skammt frá Munaðarnesi. Húsið er 120 fm að stærð með þremur svefnherbergjum, svefnlofti og litlu gestahúsi. Alls er svefnaðstaða fyrir 10 manns í húsinu. Það stendur í grónu landi og umhverfis það er stór verönd með heitum potti. Opnað verður fyrir bókanir í húsið fimmtudaginn 23. febrúar kl. 9:00 og hægt er að bóka það á orlofsvef SFR gegnum Mínar síður. Það er afar mikilvægt að þeir sem leigja hús kynni sér vel hvernig þarf að ganga frá þeim, öryggisins vegna. Allar nánari upplýsingar má finna inn á orlofsvefnum.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)