7. mars 2017
Stjórnarkjör í SFR stéttarfélagi
Fresturinn til framboðs vegna formanns- og stjórnarkjörs SFR er runninn út. Árni Stefán Jónsson núverandi formaður SFR gefur áfram kost á sér og ekki bárust önnur framboð í formannssætið. Árni er því sjálfkjörinn sem formaður SFR til næstu þriggja ára. Ellefu manns buðu sig fram til stjórnar SFR og er undurbúningur allsherjaratkvæðagreiðslu hafinn. Félagsmenn fá bréf í pósti með upplýsingum um framkvæmd rafrænnar kosningar og kynningu á frambjóðendunum ellefu um eða eftir næstu helgi en kosning stendur yfir frá 12. mars kl. 17:00 til 22. mars kl. 17. Niðurstöður kosninganna verða síðan kynntar á aðalfundi SFR 23. mars næstkomandi. Félagsmenn eru hvattir til þess að nýta sér kosningaréttinn og taka þannig virkan þátt í starfi SFR.