12. mars 2017
Rafræn kosning til stjórnar
Rafræn kosning til stjórnar SFR hefst í dag kl. 17. Í ljós kom á föstudaginn að mistök áttu sér stað við pökkun kjörgagna og því voru áður útgefin aðgangasorð gerð ógild og gefin út ný. Nýtt lykilorð er sent í dag í tölvupósti til þeirra félagsmanna sem eru með skráð netfang hjá SFR og í bréfapósti til þeirra sem ekki eru með skráð netfang.
Við hvetjum félagsmenn til að skrá netfangið sitt inni á „Mínum síðum SFR“ undir „Mínar upplýsingar“ eða senda okkur netfangið á sfr@sfr.is.