Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. mars 2017

Orlofsblað SFR er komið út

Orlofsblað SFR er komið út og er í pósti á leið til félagsmanna. Í blaðinu má finna ítarlegar upplýsingar um alla orlofskosti sem félagið býður félagsmönnum sínum upp á, auk fjölda mynda af orlofshúsum. Þar má einnig finna leiðbeiningar um hvernig á að bóka hús, sækja um sumarúthlutun og hvernig orlofspunktakerfið virkar svo eitthvað sé nefnt. Nokkur ný orlofshús eru kynnt í blaðinu, meðal annars tvær nýjar íbúðir í Reykjavík og nýtt hús að Selásum í Borgarbyggð. Að orlofshúsanna er félagsmönnum boðið að kaupa gjafabréf á hótel og flug á góðu verði, útilegukort og veiðikort en allar upplýsingar varðandi gjafabréfin og kortin má finna í blaðinu.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á orlofsvef SFR og fresturinn til þess að sækja um orlofshús er til og með 18. apríl næstkomandi. Opnað verður fyrir sumarbókanir í íbúðina í Kaupmannahöfn 3. apríl og hægt verður að bóka dagleiguhús frá og með 2. maí. Við vonum að blaðið hjálpi félagsmönnum að skipuleggja gott sumarfrí og hvetjum fólk til þess að geyma blaðið því upplýsingarnar sem þar eru að finna gilda út árið.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)