6. apríl 2017
Ný stjórn SFR fundar
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar SFR var haldinn í vikunni. Þar skipti stjórn meðal annars með sér verkum og mun Bryndís Theodórsdóttir áfram gegna embætti varaformanns og Gunnar Garðarsson verður áfram ritari. Nýja stjórn SFR skipa (frá vinstri á myndinni): Sigurlaug Hrefna Sverrisdóttir, Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri, Berglind Njálsdóttir, Þórey Einarsdóttir, Gunnar Garðarsson ritari, Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko, Garðar Sveinsson, Ramuné Kamaraauskaité, Viðar Ernir Axelsson, Jóhanna Lára Óttarsdóttir, Bryndís Theodórsdóttir varaformaður og Árni Stefán Jónsson formaður.