Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. apríl 2017

Nýtt félagsskírteini SFR

Fljótlega geta félagsmenn átt von á því að fá nýtt félagsskírteini í pósti. Skírteinið er með örlitlu öðru sniði en áður og er til frambúðar. Það þýðir að það er ekki endurnýjað á tveggja ára fresti eins og verið hefur og því þarf að gæta þess vel svo komist verði hjá þeim óþægindum sem fylgja endurnýjun kortsins. Ef kortið týnist þarf að snúa sér til skrifstofu félagsins. Hætti félagsmaður hjá félaginu er kortið um leið orðið óvirkt.

Félagsskírteinið er unnið í samstarfi við Íslandskortið/Frímann og er rafrænt auðkenniskort sem opnar ótal möguleika til að nýta kortið til auðkenningar í ýmsum verslunum og fá afslátt á vörum og þjónustu víðs vegar um landið. Upplýsingar um afsláttarkjör eru á heimasíðu félagsins www.sfr.is/um-sfr/utgafa/afslattur/. Til að nýta sér afsláttinn verða félagsmenn að framvísa félagsskírteini við upphaf viðskipta. Við hvetjum félagsmenn til þess að nýta sér þá afslætti sem það gefur.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)