Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. maí 2017

SFR vísar kjaradeilu við Isavia til sáttasemjara.

Samninganefndir SFR stéttarfélags og Isavia hittust á samningafundi í dag, en eins og kunnugt er þá felldu félagsmenn SFR hjá Isavia nýgerðan kjarasamning. Á samningafundinum sem hófst kl. 13 var farið yfir þá stöðu sem uppi er og hugmyndir lagðar fram að lausn deilunnar. Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á fundinum og var ákveðið að slíta viðræðunum og vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Ríkissáttasemjari mun því stýra vinnunni við samningagerðina og boða til næsta samningafundar.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)