Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. maí 2017

Hótelmiðar koma í sölu 1. júní

Nú styttist í að félagsmenn geti keypt hótelmiða en þeir koma á orlofsvefinn 1. júní nk. Sérstök athygli er vakin á því að Fosshótel Dalvík hefur verið selt og er því ekki lengur partur af Fosshótel keðjunni. Hótelið heitir núna Hótel Dalvík.

Einnig minnum við á að best er að bóka hótelherbergið fyrst og kaupa síðan hótelmiða.

Fosshótel - Gildir sumarið 2017
Gistimiði Fosshótela gildir fyrir gistingu í tveggja manna herbergi í eina nótt. Að þessu sinni kaupa félagsmenn einn miða fyrir hverja gistinótt á 19.800 kr. Morgunverður er innifalinn. Félagsmenn bóka sjálfir í síma viðkomandi hótels eða á aðalskrifstofu Fosshótela 562-4000. Bókanir má einnig senda á netfangið bokun@fosshotel.is og taka skal fram að greitt sé með gistimiða.
Félagsmenn eru hvattir til að panta gistingu með góðum fyrirvara. Fosshótel rekur bæði heilsárs- og sumarhótel um land allt. Sjá nánari upplýsingar á www.fosshotel.is

Verð fyrir tveggja manna herbergi 19.800 kr.

Hótel Edda - Gildir sumarið 2017
Verður til sölu í júní, júlí og fram í byrjun ágúst. Morgunverður er ekki innifalinn. Á Edduhótelunum er boðið upp á fjölbreyttar veitingar. Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.

Miðar eru aðeins bókanlegir í gegnum síma eða tölvupóst hjá bókunardeild Hótel Eddu. Þeir eru ekki bókanlegir á Netinu. Greiðslumiðana má nota á öllum Edduhótelunum sem eru 12 hringinn í kringum landið. Sjá nánar á www.hoteledda.is.

Verð fyrir tveggja manna herbergi sumarið 2017:
Herbergi með handlaug kr. 10.000 (fullt verð 17.200)
Herbergi með baði kr. 19.000 (fullt verð 26.200)
Edda plús kr. 22.500 (fullt verð 29.700).

Hótel Keilir - Reykjanesbæ

Gistimiði á Hótel Keili, Hafnargötu 37, Reykjanesbæ. Hótelið er í innan við 5 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Það býður upp á skutlu- þjónustu til flugvallarins ásamt ókeypis WiFi og bílastæði.

Félagsmenn bóka sjálfir í síma á Hótel Keili 420 9800, www.hotelkeilir.is.

Verð fyrir herbergi sumarið 2017:
Tveggja manna herbergi 19.100 kr.
Þriggja manna herbergi 21.500 kr.
Fjögurra manna herbergi 23.900 kr.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)