22. september 2017
Félagsráð fundar
Nýtt Félagsráð SFR fundaði í vikunni, en fundir ráðsins eru alla jafna tvisvar á ári, í september og í janúar. Í Félagsráði situr stjórn félagsins, formenn fagfélaga, sjóða og deilda auk 20 annarra sem kosnir eru af trúnaðarmannaráði. Hlutverk Félagsráðs er meðal annars að vinna að stefnumótun fyrir félagið, annars undirbúning aðalfundar og kjósa í fastanefndir.
Á fundinum fjallaði Kristinn Bjarnason hagfræðingur BSRB um stöðu efnahagsmála og kynnti helstu hagtölur, Árni Stefán formaður flutti skýrslu um starfsemi SFR á árinu og greindi meðal annars frá stöðu mála í umræðum um launaskriðstryggingu og stofnanasamninga og fleira. Þórarinn Eyfjörð kynnti fjárhagstöðu félagsins og sagði einnig frá undirbúningi afar spennandi tilraunaverkefnis sem snýr að því að koma á laggirnar fagháskóla fyrir SFR félaga. Þá var kosið í fastanefndir félagsins.
Nefndir SFR 2017-2020
Menningar- og skemmtinefnd
Egill Kristján Björnsson, Fangelsismálastofnun
Halldóra Þ. Ólafsdóttir, Bændasamtökin
Salvör Jónsdóttir, Reykjavíkurborg
Garðar Svansson, Fangelsismálastofnun, fulltrúi stjórnar
Margrét Högnadóttir, RSK
Ritnefnd
Svanhildur Steinarsdóttir, Menntamálastofnun
Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko, Landspítali, fulltrúi stjórnar
Vésteinn Valgarðsson, Landspítali
Jón Ingi Jónsson, Fangelsismálastofnun
Guðni Kristjánsson, Íbúðalánasjóður
Jafnréttisnefnd
Ína Halldóra Jónasdóttir, Sjúkratryggingar
Louisa Fatkova, Landspítali
Berglind Njálsdóttir, tollstjóri, fulltrúi stjórnar
Pétur Ásbjörnsson, Landspítali
Guðjón Bjarki Sverrisson, Hafnarfjarðarbær
Fræðslunefnd
Þórey Einarsdóttir, Sjálfsbjörg, fulltrúi stjórnar
Elísabet Erlendsdóttir, Mannvirkjastofnun
Kristbjörg Halla Magnúsdóttir, SÁÁ
Sigrún Kristjánsdóttir, ÁTVR
Baldur Vignir Karlsson, Landspítali
Laganefnd
Viðar Axelsson, Landhelgisgæslan
Ólafur Hallgrímsson, Listaháskólinn
Elín Helga Jóhannesdóttir Sanko, Landspítali