3. október 2017
Orlofsvefurinn kominn í spariklæðin
Eins og glöggir félagsmenn hafa tekið eftir hefur orlofsvefurinn okkar fengið nýtt útlit. Hann virkar á svipaðan hátt og áður svo allir ættu að geta vanist honum vel en hann er óneitanlega skýrari og auðveldara er að nálgast upplýsingar. Við vekjum einnig athygli á því að þó nokkur orlofshús eru laus nú næstu helgarnar.