Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

13. október 2017

Vinnu við stofnanasamninga að ljúka

Vinnu við stofnanasamninga er að ljúka hjá SFR og viðsemjendum, einungis nokkrir samningar eru eftir og verður allt kappt lagt á að ljúka þeim sem fyrst. Eins og félagsmenn muna voru allir stofnanasamningar endurnýjaðir frá og með 1. júní síðastliðnum og launatöflum breytt og hefur það kallað á heilmikla vinnu, bæði hjá SFR og viðsemjendum sem nú bráðlega sér fyrir endann á. Í gær var gengið frá samningi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og var myndin tekin af því tilefni. Á myndinni eru fulltrúar Nýsköpunarmiðstöðvarinnar í samstarfsnefnd, trúnaðarmenn og formaður SFR.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)