Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. október 2017

Nýtum rétt okkar og kjósum

SFR hvetur alla félagsmenn sína til þess að nýta lýðræðislegan rétt sinn og kjósa í alþingiskosningunum á morgun laugardaginn 28. október. Niðurstöður kosninganna skipta miklu fyrir okkur sem launafólk og ekki síst sem opinbera starfsmenn. BSRB opnaði í byrjun mánaðar  kosningavef þar sem farið er yfir þau mál sem bandalagið telur að leggja verði höfuðáherslu á í komandi þingkosningum. Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur vefinn en þar skorar bandalagið jafnframt á þá flokka sem berjast um hylli landsmanna að gera kjósendum grein fyrir afstöðu sinni til þeirra stefnumála sem fjallað er um á vefnum.

Kosningavefur BSRB

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)