Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. nóvember 2017

Þekkirðu góðar íbúðir eða sumarhús?

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu óskar eftir íbúðum eða sumarhúsum á Siglufirði, Ísafirði og Höfn í Hornafirði eða nágrenni til framleigu fyrir félagsmenn sína sumarið 2018. Einungis fullfrágengið húsnæði í góðu ásigkomulagi kemur til greina og lóðir þurfa einnig að vera fullfrágengnar.

Áhugasamir sendi upplýsingar til Margrétar á netfangið dora@sfr.is fyrir 1. jan. næstkomandi. Allar almennar upplýsingar verða að koma fram, s.s. verð, almennt ástand eignarinnar, staðsetning, stærð, möguleikar á fjölda gesta, aldur eignar, aðstaða (heitir pottar og slíkt), lýsing á útivistarmöguleikum og afþreyingu í næsta umhverfi, o.s.frv. auk mynda. Öllum tilboðum verður svarað.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)