Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. desember 2017

Stjórn LSR gerir athugasemd við starfskjarastefnu Klakka

Stjórn LSR kom saman á fundi í gær þar sem m.a. var fjallað um nýsamþykkta starfskjarastefnu Klakka og þá sérstaklega ákvæði hennar um árangurstengdar greiðslur til stjórnar og stjórnenda. Stjórn lífeyrissjóðsins lýsir yfir eindreginni andstöðu sinni við starfskjarastefnu félagsins. Að mati stjórnar LSR felur starfskjarastefnan í sér óhófleg starfskjör til stjórnar og stjórnenda.

Stjórn LSR skorar eindregið á stjórn Klakka að beita sér fyrir því að starfskjarastefnan verði endurskoðuð.

Tilkynning þess efnis hefur verið send til stjórnar Klakka.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)