14. febrúar 2018
Launaþróunartrygging afgreidd í fyrsta sinn
Laun félagsmanna SFR hjá ríki og sjálfseignarstofnunum hækka um 1,3%
Laun félagsmanna SFR hjá ríki og sjálfseignarstofnunum verða hækkuð um 1,3% að meðaltali frá og með 1. janúar 2017, til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að hækkunin komi til framkvæmda um næstu mánaðarmót með því að launatöflurnar verða hækkaðar. Hækkunin grundvallast á ákvæði rammasamkomulags aðila vinnumarkaðarins um sameiginlega launastefnu, sem gert var 27. október 2015. Þar er lýst ákveðnu fyrirkomulagi til að vinna gegn misgengi í launaþróun á samningstímanum, sem nefnd er launaskriðstrygging (launaþróunartrygging) í samkomulaginu. Tilgangur ákvæðisins er að koma í veg fyrir, að opinberir starfsmenn og starfsmenn sjálfseignastofnana, sitji eftir í almennri launaþróun á samningstímanum. Hinar nýju launatöflur, sem gilda frá 1. janúar 2017 er hægt að sjá á vef félagsins www.sfr.is
Sjá einnig frétt BSRB um launaþróunartrygginguna.