14. febrúar 2018
Ójöfnuður á Íslandi
Stefán Ólafsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands var aðalgestur á trúnaðarmannaráðsfundinum í gær. Hann fjallaði um þróun tekju - og eignaskiptingar á Íslandi frá millistríðárunum til samtímans. Fyrirlestur hans byggir á nýútkominni bók eftir Stefán og Arnald Sölva Kristjánsson hagfræðing sem ber heitið, Ójöfnuður á Íslandi – skipting tekna og eigna í fjölþjóðlegu samhengi. Umfjöllunarefni bókarinnar er þróun íslensks samfélags, stjórnmál og lífskjör og sveiflur milli jafnaðar og ójafnaðar í fjölþjóðlegum samanburði.