19. febrúar 2018
Þorrablót Lífeyrisdeildar
Árlegt þorrablót líeyrisdeildar SFR var haldið á laugardaginn. Það mátti ekki miklu muna,að þorrinn væri liðinn, en blótinu var frestað um viku vegna veðurs og því haldið á síðasta degi Þorra.
Það var góð stemning og borðið svignaði undan kræsingunum frá Múlakaffi við ljúfa tóna úr harmonikku Ólafs Beinteins Ólafssonar sem lék undir borðhaldinu. Eftir kaffi og marengstertuna var svo tekið hraustlega til við fjöldasöng sem ómaði út í vetrarblíðuna.