18. apríl 2018
Opnir kynningarfundir fyrir alla félagsmenn
SFR og St.Rv. héldu röð morgunverðarfunda núna fyrstu mánuði ársins og tóku tæplega sex hundruð félagar beggja félaganna þátt. Morgunverðarfundirnir voru haldnir í framhaldi af stefnufundi með trúnaðarmönnum SFR og fulltrúum Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í nóvember síðastliðnum.
Niðurstöður morgunverðarfundanna eru hvatning til að taka næstu skref og því hefur verið ákveðið að halda opna kynningarfundi fyrir félagsmenn þar sem áframhaldandi samtal á sér stað. Lokaákvörðun um samstarf eða sameiningu félaganna er alltaf í höndum félagsmanna og yrði sú ákvörðun tekin í kjölfar allsherjaratkvæðagreiðslu í báðum félögum.
Opnir félagsfundir SFR í vor verða miðvikudaginn 25. apríl kl. 16.30 og sá seinni þriðjudaginn 15. maí kl. 17.30.
Fundirnir verða haldnir á Grettisgötu 89 á 1.hæð og verða með svipuðu sniði og morgunverðarfundirnir. Farið verður yfir samvinnu félaganna hingað til og síðan verður unnið á borðum með þjóðfundarsniði. Þar gefst félagsmönnum tækifæri á að koma skoðunum sínum á framfæri og ræða kosti og galla samvinnunnar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundina og taka þátt í samtalinu og vinnunni.
Samantekt morgunverðarfunda