Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. maí 2018

Stofnun ársins - vinningshafar í happdrætti



Á hverju ári eru dregnir út vinningar fyrir heppna þátttakendur í könnuninni um “Stofnun ársins”.
Að þessu sinni voru sjö vinningar dregnir út og þeir heppnu hlutu glæsilega vinninga.
Þau Jóna Sigþórsdóttir, Valgerður Guðundsdóttir og Böðvar Björnsson fengu gjafabréf frá Icelandair að andvirði 60.000.- krónur hvert.
Þær Laufey Viðarsdóttir og Linda Reimarsdóttir eiga skemmtilega daga í vændum á Airwaves í haust og Guðrún Pálsdóttir og Friðjón Bjarnason unnu helgardvöl í einhverju af hinum glæsilegu orlofshúsum SFR.

Vinningarnir eru hvatning til félagsmanna að taka þátt í könnuninni “Stofnun ársins”sem veitir dýrmæta innsýn í líðan starfsmanna á vinnustað og er stjórnendum stofnana hvatning að huga vel að mannauði sínum.

Við óskum heppnum félögum innilega til hamingju og vonum að þeir njóti vinninganna vel.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)