Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. maí 2018

Leiguíbúðir Bjargs - opið fyrir skráningu

Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir skráningu á biðlista vegna íbúða félagsins. Reiknað er með afhendingu fyrstu íbúða í júní 2019. Íbúðir Bjargs íbúðarfélags eru fyrir fjölskyldur og einstaklinga á vinnumarkaði sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum og sem hafa verið fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB s.l. 24 mánuði miðað við úthlutun.  Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða.

Skráningum á biðlista verður almennt raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla staðfestingargjalds er frágengin. Undantekning er að þær skráningar sem berast fyrir 31. júlí 2018 fara í pott og verður þeim sem þá hafa skráð sig raðað í númeraröð með úrdrætti.

Skráðu þig á www.bjargibudafelag.is - þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um íbúðafélagið og hverjir eiga rétt á úthlutun. SFR hvetur sína félagsmenn til þess að kynna sér þennan nýja búsetukost vel. Íbúðirnar verða á nokkrum stöðum, þær fyrstu verða tilbúnar í Spönginni og í Úlfarsdal. 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)