Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. júní 2018

Tvö ný orlofshús á Akureyri

Opnað verður fyrir umsóknir í ný orlofshús í Hálöndunum á Akureyri mánudaginn 2. júli kl. 9:00. Hægt verður að leigja húsin frá 9. júlí á Mínum síðum á www.sfr.is og verður opnað fyrir bókanir í öll orlofshúsin út október.

Húsin í Hálöndunum eru á orlofshúsa- og útivistarsvæði sem staðsett er miðja vegu milli Akureyrarbæjar og skíðasvæðisins í Hlíðafjalli. Húsin eru 3ja herbergja á einni hæð, með þremur svefnherbergjum og geta allt að 8 manns gist þar í einu. Tvær snyrtingar eru í hverju húsi og heitur pottur.

Það er von okkar að nýju húsin muni falla félagsmönnum vel í geð, en fleiri stéttarfélög hafa einnig fest kaup á húsum á þessu svæði. Hús SFR eru tvö og eru bæði alveg eins, þau standa við Holtaland 1 og 3.


  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)