Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. júlí 2018

Opnar fyrir bókanir á nýju Spánarhúsi

Þann 01. ágúst kl. 9:00 verður opnað fyrir bókanir út febrúar 2019 í hús SFR á Spáni.
Húsið er í um hálftíma akstursfjarlægð frá Alicante flugvelli og er staðsett í íbúðahverfi í austurhluta bæjarins Quesada. Það er á þremur hæðum og geta allt að 8 manns gist þar í einu. Í vetur má bóka tvær vikur í senn (ath. að það þarf þá að gerast í tvennu lagi) og kostar vikan 55 þúsund kr. Innifalið í leiguverði eru þrif á húsi. Allur búnaður er til staðar í húsinu. Allar upplýsingar um húsið og nágrenni þess má finna inni á orlofsvefnum.
Þess má geta að ef gestir vilja bæta við dögum fyrir eða eftir dvöl í húsinu þá býður Hótel La Laguna upp á afslátt á herbergjum og íbúðum á hótelinu. EF gestir vilja nýta sér afsláttinn þarf að hafa samband við skrifstofu SFR.

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)