17. ágúst 2018
Mikill áhugi á íbúðum Bjargs
Síðan í maí hafa áhugasamir félagsmenn aðildarfélaga BSRB og ASÍ getað skráð sig á biðlista hjá íbúðafélaginu Bjargi, en félagið mun leigja tekjulágu fólki á vinnumarkaði. Áhuginn var mikill og í lok júlí höfðu 818 umsóknir borist félaginu. Allar umsóknir sem bárust fyrir lok júlí voru settar í pott og dregið um röð þeirra á biðlista. Þetta var gert til að gæta jafnræðis þar sem reiknað var með að einhvern tíma myndi taka að koma upplýsingum um að opnað hefði verið fyrir umsóknir til félaga í aðildarfélögum BSRB og ASÍ.
Nú hefur verið dregið um röð umsækjendanna 818 á biðlistanum og geta þeir sem sóttu um séð hvar þeir standa með því að fara inn á vef Bjargs og skoða „mínar síður“. Ein númeraröð er fyrir alla óháð íbúðartegund eða staðsetningu.
Áfram er hægt að skrá sig á biðlistann og er skráningum raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla staðfestingargjalds hefur verið innt af hendi. Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsókna sendir Bjarg póst á alla aðila á biðlista með nánari upplýsingum.