Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

18. september 2018

Spánn vinsæll

Húsið sem SFR keypti á Spáni fyrr á árinu hefur fengið afar góðar viðtökur og hefur verið nánast fullbókað síðan það var opnað. Nú hefur SFR einnig fest kaup á fjögurra herbergja pent house íbúð í fjölbýlishúsi á vinsælu ferðamannasvæði á Spáni. Hún er staðsett í um 10 mín. akstursfjarlægð sunnan við Alicante og húsið stendur við ströndina. Íbúðin hentar vel fyrir hreyfihamlaða, með góðri aðkomu hvort sem gestir eru akandi eða í hjólastól, sérstöku bílastæði í bílakjallara og aðgengi að lyftum. Gistirými er fyrir 6 gesti. Verið er að koma íbúðinni í stand og við vonumst til að geta opnað fyrir bókanir í næsta mánuði. En það verður auglýst betur síðar.

Umhverfi hússins er sérlega glæsilegt. Afgirt sameiginlegt með sundlaug, tennisvelli og leiktækjum fyrir börn og fullorðna. Ströndin er beint fyrir framan húsið og er aðeins yfir eina götu að fara, stutt er í fallegt útivistarsvæði, golfvelli og fjölbreyttar verslanir, markaði og veitingastaði í Alicante.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)