Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. nóvember 2018

Sameinuð stöndum við ...

Formenn SFR og St.Rv. skrifuðu grein í Fréttablaðið í morgun 5. nóvember um styrkleikann sem getur orðið til við sameiningu. 

Undanfarin ár og áratugi hefur verið sterk þróun í átt að sameiningum félaga, fyrirtækja og jafnvel sveitarfélaga. Það er hvorki tilviljun né að ástæðulausu. Það hefur einnig verið stefna BSBR að fækka félagseiningum, stækka þær og styrkja. Þar er ekki vanþörf á. Launafólk kemur til með að þurfa á öllum sínum styrk að halda til að sækja eðlilegar kjarabætur í náinni framtíð.

Dagana 6.-9. nóvember stendur yfir atkvæðagreiðsla um sameiningu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu. Samstarf félaganna hefur staðið yfir í meira en tvo áratugi og verið afar farsælt. Nú er komið að því að reyna á hvort ekki sé rétt að stíga skrefið til fulls og sameina félögin í eitt stórt félag.

Við formenn félaganna sem höfum verið í forystu lengi erum þeirrar skoðunar að með stóru sameinuðu félagi gætum við sótt sterkar fram til bættra kjara fyrir félagsmenn auk þess að auka þjónustuna. Við sameiningu verður tryggt að allir félagsmenn munu halda áunnum réttindum sínum.
Á framtíðarvinnumarkaði munu mæta okkur verkefni sem krefjast styrks og öflugs skipulags. Í nýju félagi yrðu félagsmennirnir tæplega 11 þúsund og slagkraftur þess því mikill. Félagið yrði auk þess mjög sterkt fjárhagslega með 67 orlofshús og íbúðir og með gríðarlega öflugan vinnudeilusjóð.

Rafræn atkvæðagreiðsla um sameininguna fer fram dagana 6. - 9. nóvember og við hvetjum félagsmenn beggja félaga að kynna sér málið og taka afstöðu. Um leið leggjum við áherslu á að þegar kemur að atkvæðagreiðslunni sjálfri, vegur okkar skoðun jafn þungt og annarra félagsmanna. Það skiptir afar miklu máli að þátttakan verði góð og að afgerandi niðurstaða fáist. Þannig fær forysta félaganna styrka leiðsögn um næstu skref.


Árni Stefán Jónson, formaður SFR stéttarfélags í almannaþjónustu Garðar Hilmarsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)