Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. desember 2018

Minningarorð um góðan félaga

Í dag er borin til grafar góður félagi og vinkona okkar SFR félaga. Hrafnhildur Hauksdóttir var afar virk í félagsstarfi stéttarfélagsins um árabil. Hún var trúnaðarmaður á sínum vinnustað, sat í samninganefnd, Félagsráði og í stjórn Styrktar- og sjúkrasjóðs félagsins auk þess sem hún var fulltrúi félagsins á BSRB þingi nú í haust. Hrafnhildur sinnti trúnaðarstörfum sínum fyrir félagið af dugnaði og heilindum. Fráfall hennar er okkur öllum sem henni kynntumst og áttum með henni gott og mikið samstarf mikill harmur. Við kveðjum í dag góðan félaga með söknuði og sendum fjölskyldu Hrafnhildar okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)