10. desember 2018
Sungið dátt á jólaballi SFR og St.Rv.
Gleðin var við völd á árlegu jólaballi SFR og St.Rv. í Gullhömrum síðastliðinn laugardag. Dansað var í kringum jólatréð og sungið dátt með jólasveinunum sem létu sitt ekki eftir liggja og settust á gólfið, þrátt fyrir að vera stirðir, til að geta talað við börnin.