Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. desember 2018

Blaðið í prentun

Blað stéttarfélaganna mun berast félagsmönnum í  næstu viku. Blaðið er að venju stútfullt af góðu efni. Þar má meðal annars lesa um sameiningu félaganna og þá vinnu sem verið er að inna af hendi vegna hennar. Í blaðinuer einnig viðtal við nýjan formann BSRB Sonju Ýr Þorbergsdóttur, auk umfjöllunar um aukið álag á starfsmenn í sundlaugum borgarinnar og umfjöllun um þing BSRB. Jólamyndagátan og krossgátan eru á sínum stað auk spennandi uppskrifta af tælenskum hátíðamat.

 

Þess má einnig geta að dagbækurnar okkar vinsælu eru einnig að koma úr prentun næstu daga. Félögin geta nú út sameiginlega dagbók og þeir sem vilja fá hana senda geta óskað eftir því hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)