Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. janúar 2019

Rafræn og umhverfisvæn - Gott að vita

Gott að vita námskeiðin okkar hafa jafnan verið afar vinsæl. Þau verða í boði á vorönninni eins og vanalega en við munum ekki ná því að gefa út blað áður en þau hefjast. Þess vegna biðjum við félagsmenn um að fylgjast vel með á vefsíðunni okkar og facebook þar sem þau munu verða auglýst í janúar. Við munum einnig senda vefpóst þegar þar að kemur.

Við treystum stöðugt á meira rafrænar leiðir til þess að koma upplýsingum til félagsmanna, bæði af því að það er fljótlegra, ódýrara og einnig umhverfisvænna. Þeir félagar sem eru með nýtt netfang eða þeir sem hafa ekki fengið tölvupósta frá okkur eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofuna, eða fara inn á Mínar síður og bæta þar inn upplýsingum.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)