Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. janúar 2019

Gott að vita - skráning hefst 29.janúar

SFR og St.Rv. bjóða að venju upp á fjölbreytt námskeið undir hatti Gott að vita og hefst skráning á námskeiðin þriðjudaginn 29. janúar næstkomandi kl. 17:00. 

Nú á vörinni er m.a. boðið upp á draugagöngu um miðbæ Reykjavíkur, golfnámskeið, ræktun matjurta, hjólanámskeið og hnýtingar svo eitthvað sé nefnt. Fyrstu námskeiðin byrja aðra vikuna í febrúar og því borgar sig að hafa skjótar hendur að skrá sig. 

Þar sem um takmarkað magn sæta á hverju námskeið er að ræða viljum við brýna fyrir félagsfólki okkar að í fyrsta lagi vera alveg viss um að fólk komist á þau námskeið sem það skráir sig á og í öðru lagi að láta okkur vita með sem mestum fyrirvara ef einhver óviðráðanleg forföll verða, þar sem nær undantekningarlaust eru biðlistar á námskeiðin.

Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)