Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. febrúar 2019

Borgarstjóra afhent formlegt bréf

Borgarstjóri tók við bréfi úr höndum þeirra Árna Stefáns Jónssonar formanns Sameykis og Garðars Hilmarssonar varaformanns síðdegis í gær en í bréfinu er m.a. formleg tilkynning þess efnis að sameining SFR stéttarfélags og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sé nú orðin að veruleika. Hið sameinaða félag fer nú með samningsaðild fyrir fyrrum félagsmenn SFR og St.Rv og hefur yfirtekið réttindi og skyldur samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna við viðsemjendur þeirra og mun framvegis annast kjarasamningsgerð fyrir þeirra hönd.

Sameyki er þriðja stærsta stéttarfélag landsins og er Reykjavíkurborg næst stærsti viðsemjandi þess. Félagið væntir góðs samstarfs við viðsemjendur sína í framtíðinni en samningar eru lausir í lok mars.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)