Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. mars 2019

NÝR ORLOFSVEFUR

Orlofskerfi SFR og St.Rv. hefur nú verið sameinað og þess vegna höfum við að mestu lokað fyrir gamla Orlofsvef SFR. Í staðinn þarf að velja tengil beint inn á Orlofsvef St.Rv. sem við höfum sett efst á síðuna okkar (sjá mynd). Svona verður þetta þar til við höfum fengið nýja vefsíðu en kerfið ætti að vera einfalt og þægilegt fyrir alla í notkun. Orlofsblað félagsins er nú að vera tilbúið og fer í prentun næstu daga. Félagsmenn geta átt von á blaðinu inn út lúguna hjá sér eftir rúma viku en í blaðinu má finna ítarlega kynningu á öllum orlofskostum Sameykis. Úthlutun fyrir sumarið innanlands verður kringum páskana en nú stendur yfir úthlutun í orlofshús og íbúðir félagsins á Spáni í sumar. Við hvetjum félagsmenn til að kíkja inn á Orlofsvefinn og kynna sér möguleikana.

Beinn tengill á Orlofsvef Sameykis

Athugið að þeir sem þegar eiga bókað hús SFR þurfa að fara "gömlu leiðina" í gegnum Mínar síður til að prenta út kvittanir. Sjá hér.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)