Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. mars 2019

Þitt álit skiptir máli … og svo eru vinningar!


Einungs örfáir dagar eru eftir af könnuninni um Stofnun ársins og mikilvægt að við fáum sem flesta til þess að taka þátt. Félagsmenn Sameykis ættu allir að vera búnir að fá könnunina í tölvupósti, ef ekki hafið samband við solveig@sameyki.is sem allra fyrst.

Þær stofnanir sem fá bestu einkunn frá sínu starfsfólki hljóta síðan titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun. Að auki fjallar könnunin um launakjör og til þess að svara þeim þætti þurfa starfsmenn að hafa launaseðilinn sinn við höndina. Þess má geta að VR lætur gera sambærilega könnun á sama tíma og það gefur okkur gott tækifæri til samanburðar við almanna markaðinn.

Við hvetjum alla til þess að gefa sér tíma til þess að svara könnuninni eins ítarlega og þeir geta. Niðurstöðurnar eru okkur öllum afar mikilvægar og gefa góðar upplýsingar um stöðuna úti á stofnunum, um líðan starfsfólk og fleira.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis (áður SFR og St.Rv.), fjármála- og efnahagsráðuneytisins og fjölmargra stofnana. Könnunin nær til um 50.000 manns á almennum og opinberum vinnumarkaði.
Þeir sem hafa verið í félaginu í 3 mánuði í janúar og eru í 40% starfshlutfalli eða meira eiga að fá könnunina senda. Ef þú finnur ekki könnunina í tölvupóstinum þínum skaltu kíkja í ruslpósthólf og önnur hólf sem fjölpóstur gæti lent í. Ef ekkert finnst skaltu senda tölvupóst á solveig@sameyki.is með kennitölu og netfangi sem þú vilt fá könnunina senda á.

Dettur þú í lukkupottinn?
Allir sem klára könnunina fara sjálfkrafa í happdrættispott. Úr hópi svarenda verða dregnir vinningar úr innsendum svörum. Vinningarnir eru ekki af verri endanum: Gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 50 þúsund krónur og aðgöngumiðar að Iceland Airwaves hátíðinni, helgarvöl í orlofshúsum og vikudvöl í orlofshúsi félagsins á Spáni.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)