Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

4. apríl 2019

Kjarasamningar

Sameyki hefur undanfarnar vikur átt í viðræðum við viðsemjendur sína, en flestir samningar voru lausir 31. mars síðastliðinn. Samninganefndir okkar hafa fundað með fulltrúum ríkis, Reykjavíkurborgar, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Orkuveitunnar, Isavia o.fl. Viðræðurnar hafa þó gengið hægt á meðan beðið var eftir almenna markaðinum og útspili ríkisstjórnarinnar. Fréttir af undirskrift samninga í gærkvöldi og nýr lífskjarasamningur gætu haft þau áhrif að meiri þungi færðust í umræðurnar. Um leið og við lýsum yfir sterkum vilja til þess að setjast nú af alvöru við samningaborðið þá óskum við félögum okkar til hamingju með nýjan kjarasamning.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)