Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. maí 2019

Til hamingju Ísland - Stofnanir ársins eru ...

Valið á Stofnun ársins 2019 var kynnt við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica fyrr í dag en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna. Valið er byggt á svörum rúmlega 10 þúsund starfsmanna í einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins. Stofnanir ársins 2019 eru Frístundamiðstöðin Tjörnin, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Persónuvernd, Skrifstofa velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Ríkisendurskoðun. Hástökkvarar ársins eru Skrifstofa Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra.

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu stendur fyrir könnuninni um Stofnun ársins og voru niðurstöður kynntar á Hilton hótel Nordica að viðstöddu fjölmenni fyrr í dag. Könnun meðal félagsmanna er unnin í samstarfi Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og VR, sem mun kynna niðurstöður sínar síðar. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar sem er stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og var úrtakið tæplega 50.000 manns.
Könnunin gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum. Það er von okkar að könnunin nýtist stjórnendum og starfsmönnum sem best.

Niðurstöður könnunarinnar sýna að heildareinkunn hefur almennt hækkað örlítið á undanförnum árum. Þá hefur álag og streita í starfsumhverfi einnig aukist að mati starfsmanna undanfarin ár. Það sem vekur hvað mesta athygli nú er að þátturinn sem mælir tilfinningu starfsmanna fyrir jafnrétti á vinnustöðum tekur nú stóran kipp upp á við. Því má eflaust þakka vitundarvakningu um jafnréttismál, til dæmis í tengslum við #metoo og beinna aðgerða á vinnustöðum svo sem innleiðingu jafnlaunastaðals, tilraunaverkefnum um styttingu vinnuvikunnar og fleiru. Ánægja með launakjör skorar enn lægst allra þátta og er vert að vekja athygli á því í ljósi þess að nú standa yfir kjarasamningsviðræður við viðsemjendur Sameykis.

Eftirfarandi stofnanir hljóta titilinn Stofnun ársins og Stofnun ársins – borg og bær en þeim er skipt niður eftir stærð stofnunarinnar.

Stofnun ársins borg og bær
 Stofnun ársins - Borg og bær í flokki stærri stofnana (50 starfsmenn og fleiri) er Frístundamiðstöðin Tjörnin með einkunnina 4,453.
 Stofnun ársins - Borg og bær í flokki minni stofnana (færri en 50 starfsmenn) er Skrifstofa velferðarsviðs Reykjavíkurborgar með einkunnina 4,352.
 Titilinn Hástökkvari fær sú stofnun sem hækkar sig mest á milli ára. Í ár er það Skrifstofa velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem hlýtur þann titil.


Stofnun ársins – ríki, sjálfseignarstofnanir o.fl.
 Stofnun ársins í flokki stærri stofnana (50 starfsmenn eða fleiri) er Ríkisendurskoðun með einkunnina 4,449.
 Stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana (20-49 starfsmenn) er Menntaskólinn á Tröllaskaga með einkunnina 4,738.
 Stofnun ársins í flokki minni stofnana (færri en 20 starfsmenn) er Persónuvernd með einkunnina 4,648.
 Titilinn Hástökkvari fær sú stofnun sem hækkar sig mest á milli ára. Í ár hlýtur þann titil Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra.

Í flokknum Stofnun ársins – borg og bær fá að auki fjórar stofnanir í hvorum flokki titilinn Fyrirmyndarstofnun:
 Fyrirmyndarstofnanir í flokki stærri stofnana eru ásamt Frístundamiðstöðinni Tjörninni: Norðlingaskóli, Frístundamiðstöðin Gufunesbær, Laugarnesskóli og Orkuveita Reykjavíkur.
 Fyrirmyndarstofnanir í flokki minni stofnana ásamt Skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar eru: Aðalskrifstofa Akranesskaupstaðar, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur og Félagsþjónustusvið Seltjarnarness.

Í flokknum Stofnun ársins fá að auki fjórar stofnanir í hvorum flokki titilinn Fyrirmyndarstofnun:

 Fyrirmyndarstofnanir í flokki stærri stofnana eru ásamt Ríkisendurskoðun, Reykjalundur, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Ríkisskattstjóri og Skógræktin.
 Fyrirmyndarstofnanir í flokki meðalstórra stofnana ásamt Menntaskólanum á Tröllaskaga, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Einkaleyfastofan, Menntaskólinn að Laugarvatni og Samkeppniseftirlitið.
 Fyrirmyndarstofnanir í flokki minni stofnana eru ásamt Persónuvernd: Héraðsdómur Suðurlands, Jafnréttisstofa, Geislavarnir ríkisins og Lögreglan í Vestmannaeyjum.


Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu óskar starfsmönnum og stjórnendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.

Lestu meira á www.sameyki.is

 

Myndir má finna á facebook síðu Sameykis

    

  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)