Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. ágúst 2019

Viltu vera með?


Auglýst er eftir framboðum til fulltrúaráðs Sameykis. Kosið verður í fulltrúaráð Sameykis á fyrsta fundi trúnaðarmannaráðs sem verður haldinn 11. september 2019. Allir trúnaðarmenn sem hafa áhuga á að taka frekari þátt í starfi Sameykis og mótun stefnu félagsins eru hvattir til að bjóða sig fram í fulltrúaráð, bæði reynslumiklir trúnaðarmenn og nýkjörnir.

Hlutverk fulltrúaráðs
Fulltrúaráð skal vinna að stefnumótun fyrir félagið í samráði við stjórn og annast undirbúning fyrir aðalfund félagsins, þar á meðal að kjósa uppstillingarnefnd og laganefnd þegar það á við. Á fundum fulltrúaráðs skal m.a. gerð grein fyrir fjárhagsstöðu sjóða félagsins og lögð fram skýrsla yfir starfsemina einu sinni á ári. Fulltrúaráð skal ákveða hvaða fastanefndir skulu starfa og setja þeim reglur og kjósa í þær. Fulltrúaráð getur einnig stofnað aðrar nefndir eða vinnuhópa innan félagsins í kringum sérstök verkefni. Fulltrúaráð skal fjalla um kjara- og réttindamál og annast undirbúning kjarasamninga.

Gert er ráð fyrir að fulltrúaráð hittist mánaðarlega yfir vetrartímann.

Stjórn Sameykis skipaði uppstillingarnefnd sem undirbýr kjör fulltrúaráðs og stillir upp til ráðsins samkvæmt reglum um kosningar til fulltrúaráðs. Eftirtaldir voru skipaðir í nefndina úr stjórn félagsins; Berglind Margrét Njálsdóttir, Jóhanna Lára Óttarsdóttir, Jón Bergvinsson og Rut Ragnarsdóttir.

Framboði má skila til uppstillingarnefndar frá og með deginum í dag, 22.ágúst til og með 3. september. Allar nánari upplýsingar gefur Kristína Erna Arnardóttir kristin@sameyki.is.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)