Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. október 2019

BSRB og ASÍ setja á fót rannsóknarstofnun

Fram kemur í frétt á vef BSRB í gær að BSRB og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að setja á fót rannsóknarstofnun í vinnumarkaðsfræðum til að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðar, félags- og efnahagsmála. Norræn heildarsamtök á vinnumarkaði starfrækja mörg hver slíkar stofnanir og er því sérstakt ánægjuefni að íslenska verkalýðshreyfingin stígi nú þetta stóra skref.

Tilgangurinn er að bæta þekkingu á lífsskilyrðum launafólks og brúa bilið milli fræðasamfélagsins og verkalýðshreyfingarinnar. Stofnuninni er ætlað að dýpka umræðuna um kaup og kjör og koma þannig með aukið fóður inn í baráttu launafólks fyrir bættri afkomu og betri lífsskilyrðum. Hún verður þverfagleg og sjálfstæð í sínum störfum.

Til að skapa rannsóknarstofnuninni rekstrargrundvöll tryggja ASÍ og BSRB sameiginlega fjármagn og aðstöðu undir reksturinn. Vonir standa til þess að stofnunin hefji starfsemi sem fyrst.

„Félagar okkar á hinum Norðurlöndunum hafa byggt upp sambærilegar rannsóknarstofnanir með góðum árangri sem hefur stuðlað að bættri þekkingu á vinnumarkaðsmálum. Því er fagnaðarefni að þetta verði loks að veruleika hér á landi. Það er brýnt að efla rannsóknir á sviði vinnumarkaðsmála og hér leggjum við grunninn að mikilvægari stofnun,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

„Það er von mín að með nýrri rannsóknarstofnun fáum við betri upplýsingar um stöðu vinnandi fólks og hvernig bæta megi hag almennings. Það skiptir miklu máli að búa til og miðla þekkingu á okkar eigin forsendum,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)