Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. nóvember 2019

Viðræður þokast í rétta átt

Samkomulag hefur náðst milli BSRB og allra viðsemjenda bandalagsins, ríkisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, um útfærslu á styttingu vinnutíma starfsmanna í dagvinnu. Næsta verkefni í kjaraviðræðum bandalagsins er að útfæra styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnufólk.

„Sú útfærsla sem sátt hefur náðst um varðandi styttingu vinnutíma dagvinnufólks hefur verið samþykkt með fyrirvara um að bandalagið nái ásættanlegri niðurstöðu í öðrum málum sem eftir er að leysa úr í kjaraviðræðunum,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Ekki er hægt að fara nánar í hvað felst í þeirri útfærslu á þessari stundu, enda kjaraviðræðurnar á borði ríkissáttasemjara og óheimilt að upplýsa opinberlega það sem fram fer á fundum á meðan viðræður eru í gangi.

Á vef BSRB kemur fram að Sonja segir það vera skýra kröfu BSRB að gengið verði lengra þegar kemur að styttingu vinnuviku vaktavinnufólks en dagvinnufólks, sem er í samræmi við þá stefnu sem mótuð var á 45. þingi bandalagsins haustið 2018.

Vinna við útfærslu styttingar vinnutíma vaktavinnufólks heldur áfram í næstu viku, auk þess sem áfram verður rætt um önnur mál sem aðildarfélög BSRB hafa falið bandalaginu að semja um.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)