Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

14. janúar 2020

Fræðslufundur um lífeyrismál - sjóðfélagar í LSR

Fræðslufundir um lífeyrismál fyrir félagsmenn aðildarfélaga BSRB, þar á meðal Sameyki, sem eru virkir sjóðfélagar í LSR og eru að nálgast starfslok verða haldnir mánudaginn 27. janúar næstkomandi.

Haldnir verða tveir aðskildir fundir. Klukkan 15 hefst fundur fyrir sjóðfélaga sem greiða í A-deild LSR en klukkan 16:30 hefst fundur fyrir sjóðfélaga sem greiða í B-deild LSR. Fundirir fara fram í sal á jarðhæð í húsnæði BSRB við Grettisgötu 89.

Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn fyrir 22. janúar næstkomandi. Það er hægt að gera með því að hringja í síma 525 8306 eða með því að senda tölvupóst á netfangið johanna@bsrb.is. Tilgreina þarf nafn, kennitölu, aðildarfélag og hvort greitt er í A- eða B-deild LSR.

Hægt verður að fylgjast með fundunum í gegnum vefinn fyrir þá sem hafa áhuga á því og eiga ekki heimangengt með því að smella hér um það leyti sem fundirnir eru að hefjast.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)