Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. janúar 2020

Námskeið á Norðurlandi og Vestfjörðum fyrir félagsmenn

Sameyki í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Farskóla Norðurlands vestra, Símey, Ölduna, Samstöðu, Kjöl og Einingu Iðju býður upp á námskeið á vorönn 2020 félagsmönnum að kostnaðarlausu. Á Ísafirði verða haldin námskeiðin Svefnvandi og hugræn atferlismeðferð (HAM), Öryggi í samskiptum með aðferðum HAM, Súrdeigsbakstur og Fjölbreyttari og virkari fundir. Á Norðurlandi verða haldin námskeiðin Matur frá Miðausturlöndum, Að varða veginn – verður 2020 þitt besta ár? ásamt námskeiðinu Grunnatriði hjóla og hjólreiða! Einnig er stefnt að því að bjóða upp á námskeiðið Húmor, gleði og hamingja með Eddu Björgins en það er í vinnslu.

Nánari upplýsingar um ofangreind námskeið má finna hér.

Einnig býður Fræðslusetrið Starfsmennt upp á tvö námskeið á Ísafirði, eitt á Akureyri og eitt Húsavík ásamt ýmsum vefnámskeiðum sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er:

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)