Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. febrúar 2020

Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun allt að 18 þúsund opinberra starfsmanna

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun aðildarfélaga BSRB fer fram dagana 17. til 19. febrúar.

Atkvæðagreiðsla Sameykis og annarra aðildarfélaga BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um verkfallsboðun mun fara fram dagana 17. til 19. febrúar. Samþykki félagsmenn verkfallsboðunina munu víðtækar aðgerðir allt að 18 þúsund opinberra starfsmanna hefjast 9. mars og standa þar til samningar hafa náðst.

Fjölbreyttir hópar starfsmanna hins opinbera munu taka þátt í verkfallsaðgerðunum, verði þær samþykktar í atkvæðagreiðslu, til dæmis starfsfólk á Landspítalanum og í annarri heilbrigðisþjónustu, í velferðarþjónustunni, skólum, leikskólum og frístundaheimilum. Einnig starfsmenn í sundlaugum og íþróttahúsum og starfsfólk sem sinnir þjónustu við aldraða og fólk með fötlun, svo einhver dæmi séu nefnd.

Boðaðar aðgerðir verða tvískiptar. Annars vegar verða verkföll hjá þorra félagsmanna hjá ríki, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg á ákveðnum dögum sem munu að óbreyttu lama stóran hluta almannaþjónustunnar þessa daga.

Hins vegar verða ákveðnir hópar í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Það verða meðal annars starfsmenn grunnskóla og frístundaheimila á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness, sem þýðir að frístundaheimilin verða lokuð frá 9. mars.

Ótímabundið allsherjarverkfall frá 15. apríl
Samkvæmt þeirri áætlun sem félagsmenn munu nú greiða atkvæði um munu þessar aðgerðir halda áfram samkvæmt áætlun fram í dymbilviku. Ótímabundið allsherjarverkfall allra félagsmanna hjá ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg mun svo hefjast þann 15. apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma.

Alls munu félagar í 17 aðildarfélögum BSRB greiða atkvæði um verkfallsboðunina. Niðurstöðurnar verða kynntar fimmtudaginn 20. febrúar. Félögin hafa verið kjarasamningslaus frá 1. apríl 2019, eða í á ellefta mánuð. Kjarasamningsviðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða.

 Félagsmenn í eftirtöldum félögum munu greiða atkvæði um verkfallsboðun:
 Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
 Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
 FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
 Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
 Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
 Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu
 Sjúkraliðafélag Íslands
 Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
 Starfsmannafélag Fjallabyggðar
 Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
 Starfsmannafélag Garðabæjar
 Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
 Starfsmannafélag Húsavíkur
 Starfsmannafélag Kópavogs
 Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
 Starfsmannafélag Suðurnesja
 Starfsmannafélag Vestmannaeyja

Þrjú félög til viðbótar; Landssamband lögreglumanna, Tollvarðafélag Íslands og Félag starfsmanna stjórnarráðsins, hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þó þeir verði að standa utan við þær.

Nærri 90 prósent vilja aðgerðir


Mikill hugur er í félagsmönnum eins og sést í óformlegri skoðanakönnun sem Sameyki hefur látið gera hjá sínu fólki. Könnunin leiddi í ljós að nærri níu af hverjum tíu félagsmönnum styðja boðun verkfalls til að þrýsta á um gerð kjarasamninga.

Atkvæðagreiðslur eru á hendi hvers aðildarfélags BSRB. Allar upplýsingar um atkvæðagreiðsluna og yfirvofandi verkfall má finna á upplýsingasíðu um verkfall.

Fréttin birtist fyrst á vef BSRB.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)