Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. mars 2020

Kynning kjarasamninga

Nú er verið að skipuleggja kynningu fyrir félagsmenn á kjarasamningum við ríki, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þar setur COVID-19 okkur í óvenjulega stöðu þar sem m.a. hefur verið óskað eftir því að heilbrigðisstarfsfólk forðist fjöldasamkomur, en þar á meðal eru einmitt margir félagsmenn Sameykis. Þess vegna hefur verið tekin sú ákvörðun að bjóða upp á „beina útsendingu“ frá kynningu hvers samnings. Kynningin verður sem sagt í gegnum netið og hægt verður að senda fyrirspurnir á meðan á kynningunni stendur. 

Búið er að skipuleggja eftirfarandi kynningar:

  • Reykjavíkurborg „bein útsending“:
    • mánudagur 16. mars kl. 16:30-17:30 og
    • miðvikudagur 18. mars kl. 8:30-9:30
  • Ríkið „bein útsending“:
    • miðvikudagur 18. mars kl. 16:00-17:00
    • fimmtudagur 19. mars kl. 9:00-10:00
  • Samband íslenskra sveitarfélaga „bein útsending“:
    • þriðjudagur 17. mars kl. 16:30-17:30

Atkvæðagreiðsla verður auglýst nánar síðar en henni þarf að vera lokið vegna samninga við:

  • Samband íslenskra sveitarfélaga mánudaginn 23. mars
  • Reykjavíkurborg miðvikudaginn 25. mars
  • Ríkið þriðjudaginn 31. mars

  • Fréttamyd

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)