Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

1. maí 2020

Teiknimyndasamkeppni

Sameyki efnir til teiknimyndasamkeppni fyrir krakka á öllum aldri í tilefni af 1. maí undir yfirskriftinni Framtíðarvinnumarkaðurinn. Samkeppnin mun þó standa í allt sumar. Hægt er að senda inn myndir á sameyki@sameyki.is til 31. ágúst 2020 og merkja Framtíðarvinnumarkaðurinn. Það má alveg sendi inn fleiri en eina mynd!

Við hvetjum krakka til teikna sjálfsmynd af sér í vinnunni sem þau ætla að sinna þegar þau verða stór, eða það sem þau langar að gera þegar þau verða stór. Við munum svo setja myndirnar á sýningarsvæði á vefnum og veljum að lokum þrjár verðlaunamyndir.

Skemmtidagur fyrir fjölskylduna í verðlaun!
Verðlaunin eru ekki af verri endanum og eru fyrir krakkana ásamt fjölskyldum þeirra í formi spennandi skemmtidags!

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)