Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

15. september 2020

Raunfærnimat - eitthvað fyrir þig?

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur tekið saman lista yfir þau raunfærnimatsverkefni sem eru í gangi hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum um allt land. Raunfærnimat getur mögulega stytt nám og verið fólki hvatning til að ljúka því.

Raunfærnimat er ætlað fólki 23 ára og eldra sem er með að lágmarki þriggja ára starfsreynslu í sinni starfsgrein. Á haustönn 2020 verða fjölmargar leiðir í boði fyrir fólk í ýmsum starfsstéttum. Nánari upplýsingar veitir hver miðstöð fyrir sig.

Hér er yfirlit yfir þær greinar sem eru í boði í raunfærnimati hjá símenntunarmiðstöðvum um land allt á haustönn 2020. Nánari upplýsingar veitir hver miðstöð fyrir sig.

Höfuðborgarsvæðið
Mímir-símenntun: Stuðningsfulltrúi, leikskólaliði, félagsliði, félagsmála- og tómstundafulltrúi, íslenska, danska, enska og stærðfræði.
Framvegis: Tölvubraut Upplýsingatækniskólans.
Iðan fræðslusetur: Allar iðngreinar nema rafiðngreinar.
Rafmennt: Rafiðngreinar, hljóðvinnsla og viðburðalýsing.

Suðurnes
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum: Fisktækni, almenn starfshæfni, leikskólaliði, stuðningsfulltrúi og félagsliði.

Vesturland
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi: Leikskólaliði, stuðningsfulltrúi, félagsliði, almenn starfshæfni, búfræði og verslunarfulltrúi.

Vestfirðir
Fræðslumiðstöð Vestfjarða: Fisktækni, almenn starfshæfni, almennar bóklegar greinar, félagsliði og leikskólaliði.

Norðurland vestra
Farskólinn: Leikskólaliði, stuðningsfulltrúi og félagsliði.

Norðurland eystra
Símey: Fiskveiðar, fiskvinnsla, netagerð, matartækni, matsveinn, skipstjórn, vélstjórn, félagsliði, leikskólaliði, stuðningsfulltrúi, félagsmála- og tómstundafulltrúi.
Þekkingarnet Þingeyinga: Félagsliði, leikskólaliði og stuðningsfulltrúi.

Austurland
Austurbrú: Ekkert raunfærnimat á haustönn.

Suðurland
Fræðslunetið -símenntun á suðurlandi: Ferðaþjónn.

Vestmannaeyjar
Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð: Skipstjórn.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)